Fotbolti.net
10.07.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Atli missir líklega af næstu leikjum

Atli Þór hefur verið öflugur fyrir Fram á tímabilinu.

Atli Þór hefur verið öflugur fyrir Fram á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Þór Jónasson, framherji Fram, verður ekki með liðinu þegar Framarar taka á móti Þór í Bestu deildinni á sunnudagskvöld.

Atli var ekki með gegn Keflavík í síðustu umferð vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu.
Rúnar stefnir á að stýra liðinu gegn Þór - „Hefnd er ekki til í orðabókinni minni"
TENGT EFNI

Rúnar stefnir á að stýra liðinu gegn Þór - „Hefnd er ekki til í orðabókinni minni"

„Atli er frá og verður frá í einhvern tíma," segir Rúnar en telur að meiðslin muni halda honum frá í vikur frekar en mánuði. „Ég á eftir að hitta Atla sjálfur, veit ekki nákvæmlega hvað er að hrjá hann, en hann hefur glímt við sömu meiðsli áður."

Atli verður 24 ára í næsta mánuði, hann er stæðilegur framherji sem er á láni frá Víkingi. Hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp eitt í níu byrjunarliðsleikjum á tímabilinu.

„Að öðru leyti er Kyle (McLagan) að reyna koma til baka, hann tók þátt í æfingum í vikunni, er að gera meira en áður og er að nálgast. Vonandi verða viðbrögð líkamans jákvæð við auknu álagi," segir Rúnar um bandaríska varnarmanninn sem hefur verið frá síðustu vikur.

Leikurinn á sunnudag hefst klukkan 18:00 og fer fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal.
Kyle lék síðast í lok maí.

Kyle lék síðast í lok maí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.