Burnley fær 32 milljónir frá Leipzig

Mynd: EPA

Mynd: EPA
RB Leipzig er að ganga frá kaupum á franska miðverðinum Maxime Estéve frá Burnley. Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.
Leipzig borgar í heildina 32 milljónir fyrir Estéve, sem er 24 ára gamall og ólst upp hjá Montpellier.
Estéve var mikilvægur hlekkur í liði Burnley sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og einn af betri leikmönnum liðsins.
Burnley er að selja ýmsa leikmenn eftir fallið úr úrvalsdeildinni en félagið var að ráða Belgann Nicky Hayen sem aðalþjálfara.

TENGT EFNI