Fotbolti.net
10.07.26 - 20:39
Ívan Guðjón Baldursson

Courtois fór meiddur af velli

Courtois fór meiddur af velli
Canon

Mynd: EPA

Belgía er að keppa við Evrópumeistarana frá Spáni í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins þessa stundina og er staðan 1-1 þegar stundarfjórðungur er eftir af venjulegum leiktíma.
Belgar hafa verið ansi óheppnir með meiðsli upp á síðkastið og voru að missa markvörðinn öfluga Thibaut Courtois, sem er af mörgum talinn sá allra besti í heimi, í meiðsli rétt í þessu.

Miðjumaðurinn sterki Amadou Onana meiddist illa á dögunum og svo varð fyrirliðinn Youri Tielemans fyrir meiðslum í upphitun fyrir leik kvöldsins.

Courtois bættist svo við meiðslalistann í síðari hálfleik og kom Senne Lammens, markvörður Man Utd, inn af bekknum í hans stað. Mögulega er um vöðvameiðsli að ræða en Courtois var í tárum þegar hann gekk af velli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.