Fotbolti.net
10.07.26 - 21:01
Ívan Guðjón Baldursson

HM: Merino skaut Evrópumeisturunum í undanúrslit

HM: Merino skaut Evrópumeisturunum í undanúrslit
Canon

Mynd: EPA

Spánn 2 - 1 Belgía
1-0 Fabian Ruiz ('30 )
1-1 Charles De Ketelaere ('41 )
2-1 Mikel Merino ('88 )
Evrópumeistararnir frá Spáni eru búnir að tryggja sér þátttökurétt í undanúrslitum heimsmeistaramótsins eftir nauman sigur á Belgíu í 8-liða úrslitum.

Spánverjar voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Þeir héldu boltanum vel og sköpuðu færi og leiddi eitt þeirra til marks frá Fabián Ruiz sem skoraði af stuttu færi þegar hann fylgdi marktilraun samherja síns eftir.

Belgar sköpuðu sér lítið sem ekkert en tókst þó að jafna metin þegar Charles De Ketelaere skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Timothy Castagne.

Spánverjar voru áfram sterkari aðilinn í síðari hálfleik en tókst ekki að setja boltann í netið fyrr en undir lokin, eftir að Thibaut Courtois markvörður Belga hafði farið meiddur af velli. Mikel Merino var nýkominn inn af bekknum þegar hann var fyrstur að bregðast við eftir mistök Senne Lammens sem tók stöðu Courtois á milli stanganna.

Lammens mistókst að handsama boltann, eða slá hann til hliðar, eftir langskot frá miðverðinum Pau Cubarsí. Þess í stað varði hann boltann út í vítateiginn þar sem Merino mætti á harðaspretti til að fylgja eftir með marki af stuttu færi.

Belgar fengu færi til að jafna leikinn í uppbótartíma en náðu ekki að koma boltanum framhjá varnarmönnum Spánverja eftir að Unai Simón markvörður var skilinn eftir í grasinu. Lokatölur 2-1 og reyndist Merino hetja Spánverja annan leikinn í röð, eftir að hafa einnig komið inn undir lokin og skorað sigurmarkið í 16-liða úrslitunum gegn Portúgal.

Spánn mætir Frakklandi í undanúrslitum. Spánverjar höfðu betur þegar þjóðirnar mættust í úrslitaleik Evrópumótsins fyrir tveimur árum.
HM: Merino skaut Evrópumeisturunum í undanúrslit
Canon

Mynd: EPA

HM: Merino skaut Evrópumeisturunum í undanúrslit
Canon

Mynd: EPA

HM: Merino skaut Evrópumeisturunum í undanúrslit
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.