Fotbolti.net
10.07.26 - 12:01
Kári Snorrason

Sadio Mané leggur landsliðsskóna á hilluna

Fagnar sigri í Afríkukeppninni í janúar. Tveimur mánuðum síðar var titillinn tekinn af Senegölum.

Fagnar sigri í Afríkukeppninni í janúar. Tveimur mánuðum síðar var titillinn tekinn af Senegölum.

Canon

Mynd: EPA

Sadio Mané hefur kallað þetta gott með senegalska landsliðinu og hefur lagt landsliðskóna á hilluna.

Hans síðasti leikur með liðinu var dramatískt 3-2 tap gegn Belgíu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.

Mane greindi frá tíðindunum með tilkynningu í senegölskum fjölmiðli og segir í tilkynningunni að hann vilji áfram koma að landsliðinu með einum eða öðrum hætti.
Alls hefur hann leikið 130 leiki fyrir Senegal og skorað í þeim 55 mörk. Hann vann AFCON með liðinu árið 2021.

Ásamt því voru Senegalar Afríkumeistarar í tvo mánuði í ár áður en Fótboltasamband Afríku úrskurðaði Marokkó sigurvegara keppninnar eftir að Senegalar höfðu gengið af velli í úrslitaleiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.