Fotbolti.net
10.08.23 - 19:48
Ívan Guðjón Baldursson

Siggi Raggi hættur hjá Keflavík

Siggi Raggi hættur hjá Keflavík
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, hættur með liðið eftir slakt gengi í sumar.

Siggi Raggi er búinn að láta af störfum og eru Keflvíkingar því í þjálfaraleit.

Liðið er aðeins með tíu stig eftir átján umferðir og hefur ekki unnið deildarleik síðan í fyrstu umferð. Keflavík er aðeins með einn sigur og sjö jafntefli í Bestu deildinni.

Keflavík hafði staðfest fyrr í sumar að Siggi Raggi myndi hætta með liðið eftir tímabilið en nú hefur verið ákveðið að flýta fyrir þjálfaraskiptunum í ljósi slaks gengis. Talið er líklegt að Haraldur Freyr Guðmundsson, sem var aðstoðarmaður Sigurðar, taki við stjórn liðsins út tímabilið.



Hér að neðan má sjá svör Sigga við spurningum um ákvörðunina að stíga frá borði eftir tímabilið. Degi síðar er hann svo hættur störfum.

Tímapunktur til að skoða eitthvað nýtt og meira spennandi
Í aðdraganda leiksins tilkynntu Keflavík og Siggi Raggi í sameiningu að leiðir milli þeirra myndu skilja eftir tímabilið, Siggi myndi ekki stýra liðinu á næsta tímabli. Varstu búinn að hugsa þetta lengi?

„Þetta var ákvörðun sem við tókum sameiginlega 31. júlí á fundi: Ég, formaður og framkvæmdastjóri. Það skilja leiðir í haust. Það er hægt að velta þessu fyrir sér fram og til baka."

„Ég hugsaði það heilmikið í fyrra eftir síðasta tímabil að hætta með liðið. Það var besta tímabil liðsins í 12 ár og við bjuggum til frábært lið. Frá því í fyrra hafa 16 leikmenn farið og það þurfti að byggja upp nýtt lið, 16 af 24 sem spiluðu í Bestu deildinni í fyrra. Það er 67% af hópnum, þar af 7-8 byrjunarliðsmenn. Við vissum að þetta verkefni yrði þungt, enda var liðinu spáð falli í byrjun móts."

„Okkur fannst tímapunktur fyrir þá að fá ferska rödd og fyrir mig að skoða eitthvað nýtt og meira spennandi. Ég er búinn að vera keyra á milli Keflavíkur og Kópavogs í fjögur ár núna, ég held að þetta sé bara fínn tímapunktur fyrir báða aðila."

„Nei, við höfum ennþá trú á verkefninu, bæði ég og stjórnin og hvorugur aðilinn vildi það. Það er bara að halda áfram, það eru 27 stig í pottinum og við erum sjö stigum frá öruggu sæti. Það eru ennþá möguleikar, eigum einhverja menn inni."


Fáir eins og Þormóður Egilsson
Veit Siggi hvernig leikmönnum fannst að heyra af tíðindunum?

„Það verður hver og einn að ákveða það fyrir sjálfan sig. Ég held að það sé enginn leikmaður að spila fyrir þjálfarann sinn, held að þeir séu fyrst og fremst að spila fyrir sjálfan sig og kannski félagið sitt í einhverjum tilvikum. En það er afskaplega lítið tryggð í fótbolta dag. Ég sagði það í sjónvarpsviðtali áðan að það eru fáir eins og Þormóður Egilsson sem spilaði allan ferilinn í KR. Þegar leikmenn hafa tekið ákveðin skref þá fara þeirri lið, leikmenn í Keflavík undanfarin ár hafa allavega gert það."

„Vonandi kemur eitthvað spennandi verkefni upp og þá skoða ég það. Á sama tíma hafa Keflvíkingar tíma til að finna nýjan aðalþjálfara fyrir næsta ár,"
sagði Siggi Raggi.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að neðan.

Siggi Raggi: Hugsaði heilmikið um að hætta eftir síðasta tímabil

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.