Fotbolti.net
10.08.26 - 13:16
Elvar Geir Magnússon

Palace að fá ísraelskan landsliðsmann

Palace að fá ísraelskan landsliðsmann
Canon

Mynd: EPA

Crystal Palace er nálægt því að ganga frá kaupum á ísraelska landsliðsmanninum Anan Khalaili frá belgíska félaginu Union Saint-Gilloise.

Búist er við að þessi 21 árs gamli leikmaður gangi til liðs við Ernina bráðlega en The Athletic greinir frá því að kaupverðið sé í kringum 21 milljón punda.

Khalaili, sem leikur á hægri kanti, lék 52 leiki í öllum keppnum fyrir Union SG á síðustu leiktíð, skoraði sex mörk og lagði upp önnur sex. Hann lék með belgíska liðinu í Meistaradeild Evrópu og mun færa Palace Evrópueynslu í aðdraganda þátttöku þess í Evrópudeildinni.
Palace og Everton skipta á leikmönnum
TENGT EFNI

Palace og Everton skipta á leikmönnum

Palace hefur verið virkt á leikmannamarkaðnum og gengið frá kaupum á varnarmönnunum Takehiro Tomiyasu og Oscar Mingueza á frjálsri sölu. BBC greindi frá því í síðustu viku að Palace hygðist einnig semja við hinn 19 ára gamla kantmann Zavier Gozo frá Real Salt Lakeþ
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.