10.08.26 - 14:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vestri selur Edson til Aserbaísjan (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri tilkynnti í dag að brasilíski varnarmaðurinn Edson hafi verið seldur frá félaginu og félagið sem kaupir hann er Qabala IK í Aserbaísjan.
Qabala er í úrvalsdeildinni í Aserbaísjan og spilar þar m.a. við Qarabag sem Vestri spilaði við í forkeppni Evrópudeildarinnar í sumar. Væntanlega hafa menn frá Qabala fylgst með honum í því einvígi.
Ekki er greint frá því hvert kaupverðið er. Edson er 24 ára og gekk í raðir Vestra fyrir tímabilið. Hann lék alls 21 leik með Vestra, þar á meðal alla fjóra Evrópuleikina. Áður hafð hann spilað í Brasilíu.

Tilkynning Vestra
Brasílumaðurinn Edson (Edson Eduardo Dias Gomes) hefur verið seldur frá Vestra til Qabala IK (Gabala) í Aserbaisjan. Gabala leikur í úrvalsdeild þar í landi og verið stöku sinnum í evrópukeppnum síðustu tíu ár. Deildin í Aserbaisjan hefst á föstudaginn og er Edson nú þegar mættur út.
Edson kom til Vestra rétt fyrir tímabilið. Tók nokkra leiki að spila sig í stand en eftir það hefur hann ekki horft til baka og leikið vel í hjarta varnarinnar.
Stjórn Vestra þakkar Edson kærlega fyrir samstarfið í sumar og óskar honum velfarnaðar í nýjum verkefnum.
Obrigado, Edson