10.08.26 - 15:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ída Marín líklega til Svíþjóðar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ída Marín Hermannsdóttir, sem hefur verið einn allra besti leikmaður Bestu deildar kvenna á tímabilinu, er samkvæmt heimildum Fótbolta.net líklega á leið til sænsku bikarmeistaranna í Hammarby.
Hammarby hefur lagt fram tilboð í landsliðskonuna og eru viðræður í gangi milli Fimleikafélagsins og sænska félagsins.

Ída er sóknarmaður sem fædd er árið 2001 og hefur verið hjá FH síðan 2024. Hún er markahæst í Bestu deildinni, hefur í sumar skorað ellefu mörk í þrettán leikjum og lagt upp eitt mark fyrir toppliðið.
Hún hefur undanfarin tímabil ekki náð fullu tímabili á Íslandi þar sem hún hefur verið í háskóla í Bandaríkjunum.
Ída hefur spilað með Fylki, Val og FH á Íslandi og háskólaliði LSU í Bandaríkjunum. Hún kom óvænt inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins snemma á árinu og á alls að baki níu A-landsleiki. Fyrir hafði hún leikið 31 leik fyrir yngri landsliðin.
Framundan hjá FH er útileikur gegn Fram á miðvikudag og svo stórleikur gegn Breiðabliki á laugardag. Ef Ída fer til Hammarby verður hún liðsfélagi landsliðskonunnar Guðrúnar Arnardóttur. Arnór Smárason er yfirmaður fótboltamála hjá kvennaliði Hammarby.