Líkleg byrjunarlið Fram og KR - Stór skörð höggvin í lið Framara

Ægir Jarl er í banni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Simon Tibbling fór af velli í síðustu umferð vegna höfuðmeiðsla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kyle McLagan fór sömuleiðis meiddur af velli í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram getur minnkað minnkað forystu Víkings niður í fimm stig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jason Daði á eftir að byrja sinn fyrsta leik fyrir KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR gerði jafntefli við FH í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Luke Rae óð í færum gegn FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir Jarl er í banni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Mikael Jónasson flautar til leiks klukkan 19:15 og verða byrjunarlið leiksins opinberuð klukkutíma fyrr. Fótbolti.net setti saman líkleg byrjunarlið leiksins.

Geta þau herjað á toppsætið? - Mikil spenna fyrir stórleik Fram og KR
Stór skörð eru höggvin í lið Framara en Rúnar Kristinsson verður sjálfur ekki á hliðarlínunni eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið fyrir að kasta vatnsbrúsa í vegg í Þjóðhátíðarleiknum gegn ÍBV í síðustu umferð.
Þá eru þeir Ægir Jarl Jónasson, Israel Garcia og Sigurjón Rúnarsson sömuleiðis í banni. Atli Þór Jónasson er meiddur og þá var Kristófer Konráðsson ekki í leikmannahóp Framara gegn ÍBV um síðustu helgi.
Þeir Simon Tibbling og Kyle McLagan fóru af velli gegn ÍBV vegna meiðsla. Meiðsli Kyle litu ekki út fyrir að vera alvarleg og er hann í líklegu byrjunarliði. Tibbling fór af velli vegna höfuðmeiðsla og er óljóst hvort hann geti verið með.
Hann er þó í líklegu byrjunarliði en skyldi hann ekki vera leikfær gæti Fred færst aftar á völlinn og Róbert Hauksson byrjað fremst ásamt Vuk.

Spáð óbreyttu byrjunarliði KR
KR gerði jafntefli við FH í síðustu umferð í hreint út sagt mögnuðum leik. KR-ingar hefðu hæglega getað skorað fimm mörk en inn vildi boltinn ekki.
Óskar Hrafn gat þó verið ánægður með frammistöðu liðsins að leik loknum og spáum við því að hann geri engar breytingar á byrjunarliðinu.
Mögulegt er að Ástbjörn Þórðarson eða Michael Akoto komi inn í vörnina en Hjalti Sigurðsson kom vel inn í vörnina og á hann byrjunarliðssæti skilið.
Jason Daði Svanþórsson hefur ekki enn byrjað leik fyrir KR en honum er spáð áframhaldandi bekkjarsetu. Hann er að koma sér í leikform eftir að hafa verið lengi frá með Grimsby í vetur.


Simon Tibbling fór af velli í síðustu umferð vegna höfuðmeiðsla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kyle McLagan fór sömuleiðis meiddur af velli í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram getur minnkað minnkað forystu Víkings niður í fimm stig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jason Daði á eftir að byrja sinn fyrsta leik fyrir KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR gerði jafntefli við FH í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Luke Rae óð í færum gegn FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

