Kjartan Kári: Stóra markmiðið er að fara aftur út

FH er mjög góður klúbbur og frábært að vera í FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull var í skemmtilegu viðtali eftir leikinn í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Úr leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ef ég á að vera hreinskilinn þá var ég með fullan fókus á leiknum, ég var áfram leikmaður FH þrátt fyrir samþykkt tilboð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Býr sig undir að taka aukaspyrnu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

FH tók öll stigin á Akureyri í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Níu leikir án taps.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

FH er mjög góður klúbbur og frábært að vera í FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við Kjartan í dag og var hann m.a. spurður út í síðustu daga.
„Mér líður bara vel, auðvitað er Víkingur spennandi; spennandi lið og vegferð í gangi þar. Ég frétti í kringum KR leikinn að búið væri að samþykkja tilboð, en ef ég á að vera hreinskilinn þá var ég með fullan fókus á leiknum, ég var áfram leikmaður FH þrátt fyrir samþykkt tilboð. Svo náði Víkingur samkomulagi við Hrannar, tóku hann í staðinn. og það er voða lítið sem ég get gert í því," segir Kjartan Kári.
„Við spiluðum tvo leiki á einhverjum fimm dögum, gegn KR og KA, og ég var með fullan fókus á FH og leikina á meðan þetta var í gangi."
Þegar kemur upp að Íslandsmeistararnir hafa áhuga, verður maður spenntur?
„Auðvitað. Það er alltaf gaman að það sé áhugi frá öðrum félögum. Þetta er það sama og gerðist í fyrra þegar bæði Víkingur og Valur höfðu áhuga. Auðvitað er maður alltaf spenntur og til í að skoða möguleikann þegar félag eins og Víkingur kemur og býður í mann, en mér líður vel í FH, gef þeim fullt kredit. FH er mjög góður klúbbur og frábært að vera í FH."
Uppsveifla hjá honum og liðinu
Þitt tímabil og þitt sumar, finnur þú að það sé uppsveifla í spilamennsku og frammistöðu?
„Já klárlega, og líka hjá liðinu sjálfu. Við byrjuðum tímabilið ekki eins sterkt og við hefðum viljað, það voru miklar breytingar og fullt af nýjum mönnum, maður var að læra inn á leikmennina. Ég held það séu núna níu leikir núna án taps eftir sigurinn í gær, allt liðið er byrjað að fúnkera saman."
„Mér finnst ég hafa verið óheppinn, verið svolítið stöngin út hjá mér. En það hefur gengið betur núna heldur en í byrjun tímabils."
Kjartan Kári hefur skorað fjögur mörk og lagt upp sex á þessu tímabili eftir að hafa skorað sex og lagt upp tólf á síðasta tímabili.
Liðsheildin orðin sterk
Er einhver lykill að því að þið hafið náð að snúa þessu við og eruð komnir á gott skrið núna?

Jökull: Let's fokking go!
„Eins og þú heyrðir í viðtalinu við Jökul í gær, hann talaði um grunnatriðin sem eru að verja markið okkar, hlaupa og berjast fyrir hvorn annan. Þegar þú gerir það vel þá kemur hitt af sjálfu sér. Menn verða rólegri á boltanum og yfirvegaðri í færunum líka. Lykilinn er að liðsheildin er orðin mjög sterk."
Fínn leikur en hefði viljað markið - Spilar í annarri stöðu
Kjartan Kári var maður leiksins í gær, lagði upp sigurmarkið fyrir fyrirliðann Ísak Óla Ólafsson.
„Þetta var alveg fínn leikur hjá mér, en ég hefði alveg verið til í að fá markið í lokin líka. Ég á eftir að skoða það betur hvort það var rangstaða eða ekki. Mér finnst þetta fínn leikur hjá mér, er að spila í annarri stöðu en ég hef verið í vanalega og ég er að finna taktinn í því að spila í holunni/fremst á vellinum."
Hvernig líkar þér að vera ekki að spila á kantinum?
„Þetta er bara skemmtilegt, ég spilaði eiginlega þessa stöðu þegar ég var í Gróttu. Ég kann alveg vel við mig í henni, veit alveg hvað ég er að gera. Það tók smá tíma að venjast því að vera aðeins innar á vellinum, en mér finnst það bara gott. Ég get skapað færi fyrir liðsfélaga mína og er líka nær markinu."
Þurfa að vera klárir í alla leiki í magnaðri deild
Hvað viltu sjá FH gera út þetta tímabil?
„Það eru fjórir leikir eftir fram að skiptingu, við tökum einn leik í einu, erum ekki að fara fram úr okkur þótt við séum taplausir í níu leikjum. Næst er leikur gegn Víkingi, svo sjáum við hvernig framhaldið er. Við þurfum að vera klárir í alla leiki, deildin er mögnuð, allir að vinna alla og jafntefli hér og þar. Við þurfum fullan fókus á að vinna leiki og að mæta alltaf klárir."
Stóra markmiðið er að fara aftur út
Stóra markmiðið hjá Kjartani Kára er að komast aftur erlendis en hann var á sínum tíma á mála hjá norska félaginu Haugesund.
„Auðvitað vill maður reyna komast sem lengst. Stefnan er á að fara aftur út og er opinn að skoða hvað kemur, en ég lít ekki á að fara út bara til að fara út. Það þarf að vera staður þar sem ég get bætt mig sem leikmaður. Núna er lítið eftir af mótinu, ætla klára mótið vel og svo sé ég hvað gerist í vetur," segir Kjartan Kári.

Jökull var í skemmtilegu viðtali eftir leikinn í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Úr leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ef ég á að vera hreinskilinn þá var ég með fullan fókus á leiknum, ég var áfram leikmaður FH þrátt fyrir samþykkt tilboð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Býr sig undir að taka aukaspyrnu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

FH tók öll stigin á Akureyri í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Níu leikir án taps.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 18 | +42 | 45 |
| 2 | Fram | 17 | +14 | 37 |
| 3 | KR | 17 | +22 | 36 |
| 4 | Breiðablik | 18 | +6 | 29 |
| 5 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 6 | ÍA | 18 | -6 | 22 |
| 7 | Keflavík | 18 | -6 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 18 | -9 | 17 |
| 10 | FH | 18 | -10 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 18 | -26 | 15 |
