Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 10. september 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Besti félagaskiptagluggi Sheffield United - Gæti bætt við framherja
Chris Wilder.
Chris Wilder.
Mynd: Getty Images
Chris Wilder, stjóri Sheffield United, segir að félagaskiptaglugginn í sumar sé sá besti síðan hann tók við liðinu árið 2016.

Wilder er ennþá að reyna að leita að liðsstyrk en hann sagðist á fréttamannafundi í dag vonast til að fá framherja á láni.

Sheffield United kom skemmtilega á óvart á síðasta tímabili en liðið mætir Wolves í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á mánudagskvöld.

Markvörðurinn Aaron Ramsdale er dýrasti leikmaðurinn sem Sheffield United keypti í sumar en hann kom frá Bournemouth á 18,5 milljónir punda. Hann á að fylla skarð Dean Henderson sem er farinn aftur til Manchester United.

Komnir til Sheffield United í sumar
Aaron Ramsdale frá Bournemouth
Max Lowe frá Derby
Jayden Bogle frá Derby
Wes Foderingham frá Rangers
ScotlandScottish Premiership
Ethan Ampadu frá Chelsea á láni
Oliver Burke frá WBA
Athugasemdir
banner
banner