Fotbolti.net
10.09.20 - 18:54
Kristófer Jónsson

Óli Kalli: Þarf að æfa mig betur

Auglýsing
Óli alli skoraði annað mark Stjörnunnar í dag.

Óli alli skoraði annað mark Stjörnunnar í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Ólafur Karl Finsen, framherji FH, var að vonum sáttur eftir 3-0 sigur gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Óli Kalli skoraði annað mark FH rétt fyrir hálfleik gegn sínum gömlu félögum.

„ Ég er ánægður með að hafa unnið en er aðeins vonsvikinn með mína frammistöðu. Ég þarf að æfa mig aðeins betur." sagði Óli Kalli eftir leikinn.
Eins og fyrr segir skoraði Óli Kalli annað mark FH en hann er einmit alinn upp hjá Stjörnunni.

„Það var gott að skora og komast áfram í bikarnum. En ég var í rauninni ekkert að pæla í því hvaða liði við værum að keppa á móti."

FH-ingar unnu leikinn sannfærandi 3-0 og ógnaði Stjarnan nokkuð lítið í leiknum. Liðin mættust í ágúst mánuði í deildinni þar sem að Stjarnan fór með 2-1 sigur.

„Mér fannst þetta smá öfugt við leikinn sem að við spiluðum við þá seinast þegar að við vorum betri en skoruðum ekki. Í dag vorum við verri en vorum að skora. En þetta var bara fínt."

Óli Kalli var spurður hvort að hann ætti einhvern óskamótherja í næstu umferð og við því svaraði hann:

„Ég veit ekki einu sinni hvaða lið eru í þessari keppni. Bara Selfoss"

Nánar er rætt við Óla Kalla í spilaranum að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.