Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
   lau 10. september 2022 17:50
Sverrir Örn Einarsson
Besti þjálfarinn 2022: Enginn átt von á því að ég myndi stýra liðinu í sumar
Ómar Ingi Guðmundsson (HK)
Lengjudeildin
Ómar Ingi Guðmundsson
Ómar Ingi Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er alltaf vont að tapa og alls ekki það sem við ætluðum okkur í leiknum hér í dag. Við ætluðum alveg klárlega að vinna síðustu tvo leikina. Við vissum svo sem að það að Fylkir myndi klúðra síðustu tveimur væri langsótt en við ætluðum okkur að sækja sigur.“
Sagði Ómar Ingi Guðmundsson þjálfari HK um súrt 4-3 tap hans manna gegn Grindavík suður með sjó fyrr í dag.

Lestu um leikinn: Grindavík 4 -  3 HK

Ómar Ingi er þjálfari ársins í Lengjudeildinni
Þrátt fyrir tapið hafði Ómar ástæðu til þess að gleðjast í dag en Fótbolti.net tilkynnti lið ársins í Lengjudeildinni í dag auk þess sem besti efnilegasti leikmaður mótsins voru valdir sem og þjálfari ársins sem féll í skaut Ómars. Eitthvað sem var eflaust ekki á radarnum hjá Ómari þegar hann hóf tímabilið sem aðstoðarmaður Brynjars Björns Gunnarssonar hjá HK.

„Ég átti ekki von á þessu þegar deildin hófst og ég held að engin hafi átt von á því heldur að ég myndi stýra liðinu í sumar. En ég er bara mjög þakklátur, þakklátur starfsfólkinu í kringum mig, Brynjari fyrir veturinn með honum og leikmönnum líka sem hafa hjálpað mér ótrúlega mikið og ég er mikli betri þjálfari í dag en daginn sem Brynjar flytur til Sviþjóðar. “

Það verður ekki af HK tekið að liðið er annað af bestu liðum Lengjudeildarinnar þetta sumarið eins og taflan segir til um. Fréttaritara lá forvitni á að vita hvað Ómari fannst hafa breyst hjá liðinu undir hans stjórn eftir að byrjun mótsins var kaflaskipt hjá liðinu.

„Ég held að við höfum þurft aðeins vorið til þess að átta okkur á því að eins góðir og við erum að það er ekki nóg eitt og śér. Þannig að það var alveg fínt "wake up call" þessar fyrstu umferðir og eftir það finnst mér þetta bara vera verðskulduð niðurstaða í mótinu að við séum að fara upp. En það hefur svo sem ekkert mikið breyst, við ætluðum okkur alltaf að reyna að halda í boltann og spila hápressu og það hefur bara tekist vel og liðið tekist vel á við það. Auðvitað hefur tekið tíma inn í sumarið en ég er bara ef ég lít til baka mjög ánægður með þróunina á liðinu undanfarna mánuði.“

Verkefnið sem bíður er stærra og meira en Lengjudeildinn en Besta Deildin bíður að ári sem er verðugt verkefni fyrir Ómar og HK að takast á við, Eru menn þegar farnir að undirbúa næsta sumar og jafnvel farnir að kortleggja hvar styrkja þarf liðið?

„Já við erum farnir að gera það alveg klárlega og munum gera það á næstu vikum. Verkefnið er stærra og mótið er lengra og verður klárlega erfiðara en við bara undirbúum okkur eins vel og hægt er og ætlum að standa okkur vel að ári “

Framundan er þó lokaleikur HK í Lengjudeildinni þetta sumarið þegar liðið tekur á móti Vestra í Kórnum eftir viku. Eru með að skipuleggja gott partý?

„Já það er alveg á hreinu. Við ætlum okkur að klára tímabilið vel. Það endar á laugardaginn þannig að það þarf að gera vel þar. “

Sagði Ómar en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner