10.09.26 - 09:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fanney Lísa seld á sjö milljónir til Molde

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fanney Lísa Jóhannesdóttir er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið til norska félagsins Molde frá uppeldisfélaginu Stjörnunni. Ekki er búið að tilkynna félagaskiptin en Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, staðfesti við Fótbolta.net á mánudagskvöld að Fanney væri á leið í atvinnumennsku.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er kaupverðið um sjö milljónir króna sem gerir hana að einum dýrasta leikmanni sem seldur hefur verið úr Bestu deildinni, en talið er að þær Fanney Inga Birkisdóttir (frá Val til Häcken) og Thelma Karen Pálmadóttir (frá FH til Häcken) séu þær dýrustu.
Fanney Lísa er kantmaður sem fædd er 2009, hún var mjög eftirsótt og voru Hammarby og Roma á meðal félaga sem vildu líka fá hana.

TENGT EFNI
Fanney Lísa að verða atvinnumaður - „Félagið er ofboðslega stolt af henni"
Hún lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki Stjörnunnar 2024, lék þá þrettán deildarleiki og skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni. Árið á undan, 2023, lék hún með Álftanesi í 2. deild.
Í ár varð hún að lykilmanni í Stjörnunni, skoraði fimm mörk í deildinni og hefur einnig lagt upp mörk í sumar. Engin í Stjörnunni hefur skorað fleiri mörk.
Hún er unglingalandsliðskona, hefur þegar spilað 31 leik fyrir yngri landsliðin og skorað í þeim tíu mörk.
Hjá Molde hittir hún fyrir Sóleyju Eddu Ingadóttur, sem er árinu eldri en Fanney Lísa og sömuleiðis uppalin hjá Stjörnunni, og Amöndu Andradóttur.