10.09.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon
Gætu samt selt Hall til Man Utd

Lewis Hall í leik gegn Liverpool.

Mynd: EPA

Lisandro Martínez.

Mynd: EPA

Nicolo Tresoldi.

Mynd: EPA

Lewis Hall í leik gegn Liverpool.

Mynd: EPA

Góðan og gleðilegan miðvikudag og velkomin með okkur í slúðurpakkann. Manchester United þarf vinstri bakvörð, Brighton er í viðræðum við lykilmann og Chelsea gæti reynt aftur við miðjumann Roma.
Newcastle gæti selt Lewis Hall (22) næsta sumar þrátt fyrir að vinstri bakvörðurinn, sem er á óskalista Manchester United, hafi samþykkt nýjan samning við Newcastle til ársins 2031. (Talksport)
Manchester United mun bjóða Lisandro Martínez (28) nýjan langtímasamning ef argentínski miðvörðurinn helst meiðslalaus og á gott tímabil á Old Trafford. (Football Insider)
Brighton er bjartsýnt á að sænski miðjumaðurinn Yasin Ayari (22) samþykki nýjan samning fljótlega en viðræður eru í gangi og hafa gengið vel. (Teamtalk)
Framtíð Kaoru Mitoma (29) hjá Brighton er í óvissu þar sem ólíklegt er að japanski vængmaðurinn framlengi samning sinn sem rennur út næsta sumar. Hann gæti yfirgefið Brighton strax í janúar. (Teamtalk)
Eftir að hafa mistekist að semja við franska miðjumanninn Manu Kone (25) í sumar gæti Chelsea reynt aftur að fá hann frá Roma í janúar. Samningurinn gæti einnig falið í sér að enski kantmaðurinn Jamie Gittens (22) fari í öfuga átt. (Simon Phillips)
Liverpool hyggst semja við annan miðjumann næsta sumar sem myndi færa argentínska landsliðsmanninn Alexis Mac Allister (27) aftar í goggunarröðinni á Anfield. (Talksport)
Atletico Madrid hyggst ekki selja spænska miðjumanninn Alex Baena (25) þrátt fyrir áhuga frá Manchester City. (Football Insider)
Austurríski varnarmaðurinn David Alaba (34) er mögulegt skotmark fyrir mexíkóska félagið Club America. Hann yfirgaf Real Madrid í sumar. (Fichajes)
Manchester United og Tottenham voru bæði með njósnara í Belgíu á þriðjudag til að fylgjast með þýska framherjanum Nicolo Tresoldi (22) hjá Club Brugge. (Teamtalk)