Fotbolti.net
10.10.26 - 09:59
Brynjar Ingi Erluson

Bayern til í að selja Davies - Efstur á óskalista Man Utd

Bayern til í að selja Davies - Efstur á óskalista Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur sett kanadíska vinstri bakvörðinn Alphonso Davies efst á óskalista sinn en Bayern München hefur sett verðmiða á leikmanninn samkvæmt Fussball News.
United leitar að sóknarsinnuðum vinstri bakverði og Davies passar vel við það sem félagið vill fá.

Fleiri hafa þó augastað á hinum 25 ára gamla bakverði. Arsenal, Liverpool og Manchester City fylgjast náið með stöðu hans hjá Bayern og bæði Barcelona og Real Madrid hafa áður sýnt honum áhuga. Davies gæti því orðið einn eftirsóttasti leikmaður næsta sumars.

Samkvæmt Fussball News vill Bayern fá 60–65 milljónir evra fyrir hann en gæti verið tilbúið að hefja viðræður ef tilboð upp á um 50 milljónir berst. Ekkert formlegt tilboð hefur þó borist og samskiptin hingað til farið fram í gegnum milliliði.

Bayern er ekki undir pressu að selja enda skrifaði Davies undir fimm ára samning í fyrra. Félagið er þó opið fyrir sölu vegna meiðslavandræða hans undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.