Fotbolti.net
10.10.26 - 13:13
Kári Snorrason
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Stjörnunnar og KA: Óbreytt hjá Norðanmönnum

Christian Bjarmi gekk í raðir Stjörnunnar frá Grindavík fyrr í sumar.

Christian Bjarmi gekk í raðir Stjörnunnar frá Grindavík fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðureign Stjörnunnar og KA hefst eftir tæpa klukkustund á Samsungvellinum. Búið er að opinbera byrjunarliðin.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 0 KA
Stjörnumenn gera þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá 5-2 tapi gegn FH í síðustu umferð fyrir landsleikjahlé.

Inn í byrjunarliðið koma þeir Sindri Þór Ingimarsson, Ibrahim Turay og Christian Bjarmi Alexandersson, sem er í byrjunarliði í fyrsta sinn í treyju Stjörnunnar.

Christian gekk í raðir Stjörnunnar frá Grindavík í sumar og hefur hann spilað tvo leiki fyrir liðið.

Úr liðinu víkja Daníel Finns, Ari Leifsson og Alex Þór Hauksson. Daníel er utan hóps.

Eiður Smári Guðjohnsen og Hallgrímur Jónasson gera engar breytingar á byrjunarliði sínu frá 3-0 sigri liðsins á Þór í síðustu umferð.

Byrjunarlið Stjarnan

  • 12. Árni Snær Ólafsson (m)
  • 3. Gustav Kjeldsen
  • 6. Sindri Þór Ingimarsson
  • 7. Örvar Eggertsson
  • 11. Birnir Snær Ingason
  • 14. Bjarki Hauksson
  • 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
  • 21. Ibrahim Turay
  • 22. Emil Atlason (f)
  • 23. Benedikt V. Warén
  • 25. Christian Bjarmi Alexandersson

Byrjunarlið KA

  • 13. Steinþór Már Auðunsson (m)
  • 2. Birgir Baldvinsson
  • 6. André Rømer
  • 7. Adam Ægir Pálsson
  • 8. Jeppe Pedersen
  • 10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
  • 21. Mikael Breki Þórðarson
  • 23. Markús Máni Pétursson
  • 28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
  • 29. Jakob Snær Árnason
  • 30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
KA vann sterkan sigur á Þór í síðustu umferð.

KA vann sterkan sigur á Þór í síðustu umferð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.