Fotbolti.net
10.10.26 - 13:27
Brynjar Ingi Erluson

England: Meistararnir sýndu karakter gegn Leeds

Guimaraes skoraði sigurmarkið eftir laglegt samspil

Guimaraes skoraði sigurmarkið eftir laglegt samspil

Canon

Mynd: EPA

Arsenal 2 - 1 Leeds
0-1 James Justin ('55 )
1-1 Riccardo Calafiori ('62 )
2-1 Bruno Guimaraes ('70 )
Englandsmeistarar Arsenal unnu frækinn 2-1 karakterssigur á Leeds United í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Emirates-leikvanginum í dag.

Leedsarar komu mjög öflugir til leiks og náðu að valda alls konar usla í teig Arsenal þar sem David Raya gerði vel í markinu og varði mjög vel.

Arsenal náði ekki að skapa sér mikið en Kai Havertz fékk tækifæri til að skora eftir undirbúning Noni Madueke en setti boltann beint á James Trafford í markinu.

Í síðari hálfleik komu Leedsarar mun ákafari út og þegar um tíu mínútur voru liðnar komust þeir í forystu er Gabriel Gudmundsson hljóp á eftir löngum bolta vinstra megin, kom honum fyrir markið þar sem Raya missti af honum og á James Justin sem þurfti að hitta boltann vel enda nokkrir Arsenal-menn komnir á marklínuna en skot hans var fast efst í vinstra hornið.

Eftir það tók Arsenal við sér og náði að snúa leiknum algerlega við.

Madueke átti fyrirgjöf á 62. mínútu á fjær á Ben White sem skallaði hann fyrir markið á Riccardo Calafioro sem átti ekki fast skot, en það var nóg til þess að koma honum yfir Trafford. Englendingurinn átti líklega að gera betur þarna, en þetta kom Arsenal í gírinn.

Átta mínútum síðar skoraði varamaðurinn Bruno Guimaraes sigurmarkið eftir stórkostlegt samspil. Bukayo Saka fann Martin Ödegaard sem kom honum inn á Declan Rice á teiginn. Hann átti þessa laglegu hælsendingu á Guimaraes sem skoraði með hnitmiðuðu skoti í vinstra hornið.

Ödegaard átti að ganga frá leiknum á 82. mínútu er Rice dansaði í gegnum vörnina við endamörkin og kom boltanum á Ödegaard sem var einn fyrir opnu marki, en brást bogalistin og boltinn í hendurnar á Trafford.

Viktor Gyökeres og Bukayo Saka fengu báðir tækifæri undir lokin til að skora. Trafford fór í skógarhlaup og missti boltann frá sér en Gyökeres komst ekki framhjá honum og rann sóknin út í sandinn og á lokasekúndunum slapp Saka einn í gegn, en fór illa með færið.

Það kom ekki að sök fyrir Arsenal sem er komið aftur á sigurbraut og fer upp að hlið Manchester City með 15 stig, en City með betri markatölu. Leeds er í 5. sæti með 9 stig.
James Justin skoraði fyrir Leeds snemma í síðari hálfleik

James Justin skoraði fyrir Leeds snemma í síðari hálfleik

Canon

Mynd: EPA

Calafiori kom Arsenal aftur inn í leikinn

Calafiori kom Arsenal aftur inn í leikinn

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal6+515
3Brighton6+1111
4Brentford6+610
5Chelsea6010
6Leeds6+39
7Liverpool5+39
8Everton5+39
9Hull City5+28
10Newcastle508
11Ipswich Town6-47
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland6-45
15Aston Villa6-55
16Crystal Palace5-54
17Fulham6-33
18Bournemouth6-43
19Coventry5-93
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.