Fotbolti.net
10.10.26 - 10:22
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Arsenal og Leeds: Þrjár breytingar hjá Arteta

Madueke kemur inn fyrir Tzolis

Madueke kemur inn fyrir Tzolis

Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal taka á móti Leeds á Emirates-leikvanginum klukkan 11:30 í dag í sjöttu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn fer loksins aftur af stað eftir óþarflega langt landsleikjahlé. Leeds getur komist upp fyrir Arsenal með sigri en meistararnir freista þess að jafna Man City að stigum.

Mikel Arteta gerir þrjár breytingar frá 3-0 tapinu gegn Brighton fyrir hlé. Ben White tekur við af Jurrien Timber í hægri bakverðinum, Myles Lewis-Skelly kemur inn á miðjuna fyrir Bruno Guimaraes og Noni Madueke leysir Christos Tzolis af hólmi.

Timber og Guimaraes eru á bekknum en Tzolis meiddist með gríska landsliðinu.

Daniel Farke teflir fram sama liði og gerði markalaust jafntefli við Crystal Palace í síðustu umferð.

Arsenal: Raya; White, Konsa, Gabriel, Calafiori; Rice, Lewis-Skelly, Odegaard; Saka, Havertz, Madueke

Leeds: Trafford; Gudmundsson, Justin, Muharemovic, Elvedi, Bogle; Tanaka, Ampadu, Stach; Okafor, Calvert-Lewin.





Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.