Fotbolti.net
10.10.26 - 10:50
Brynjar Ingi Erluson

Arteta segist vera með hreina samvisku - „Við verðum að treysta því“

Arteta segist vera með hreina samvisku - „Við verðum að treysta því“
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta var, líkt og aðrir stjórar í ensku úrvalsdeildinni, spurður út í mál deildarinnar gegn Manchester City fyrir leiki helgarinnar.
Arteta starfaði við hlið Pep Guardiola hjá Man City frá 2016 til 2019 áður en hann tók við Arsenal.

Á fréttamannafundi var hann spurður hvort hann hefði hreina samvisku eftir að City var fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.

„Já,“ svaraði Arteta stutt og laggott.

Brotin náðu yfir árin 2009 til 2018 en félagið gerði sýndarsamninga við styrktaraðila til að blása upp tekjur sínar.

Arteta vildi ekki svara því hvort hann hefði verið í sambandi við sinn gamla lærimeistara, Guardiola. Hann var síðan spurður nánar út í skýrslu óháðrar nefndar deildarinnar og sýndarsamningana.

„Ég skil spurninguna fullkomlega en það er mikilvægt að virða ferlið og þann tíma sem það tekur. Málinu er ekki lokið enda hefur niðurstöðunni verið áfrýjað. Hvorki ég né félagið munum tjá okkur frekar fyrr en endanleg niðurstaða liggur fyrir.“

Hann var einnig spurður hvort niðurstaða þyrfti að fást á þessari leiktíð til að verja trúverðugleika deildarinnar.

„Þeir sem fara með málið verða að komast að réttri niðurstöðu og ég er viss um að þeir geri það. Við verðum að treysta því. Enska úrvalsdeildin er enn sú besta í heimi, hundrað prósent,“ sagði Arteta.
Arteta segist vera með hreina samvisku - „Við verðum að treysta því“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.