10.10.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óðinn þakkar Luka Kostic fyrir markaskorunina í sumar

Mynd: KR

Mynd: KR
KR nýtti sér endurkaupsréttinn á Óðni Bjarkasyni á dögunum og fékk hann til sín frá Aftureldingu.
Óðinn átti frábært tímabil með Aftureldingu í sumar þar sem hann skorað 14 mörk í Lengjudeildinni og var næst markahæstur. Óðinn er ekki vanur því að skora svona mörg mörk í meistaraflokki. Hann skoraði þrjú mörk fyrir ÍR í fyrra.

TENGT EFNI
Óðinn Bjarka: Sá Óskar hringja og hélt ég væri í vandræðum
„Ég átti kannski ekkert von á því að setja svona rosalega mikið af mörkum en ég var búinn að leggja mikla aukavinnu í að klára færi. Með ÍR þá skoraði ég ekkert ógeðslega mikið. Ég skoraði þrjú mörk," sagði Óðinn.
„Ég var búinn að horfa á leikina og fór stundum yfir þá með Luka Kostic sem hefur hjálpað mér fáránlega mikið og ég er afar þakklátur fyrir hann. Þá sáum við alveg að ég er með þetta í mér og ég var frekar óheppinn með það að gera. Og svo kem ég aftur þar sem er dúndrandi sóknarbolti og maður lagði alltaf aukavinnu eftir æfingar í að klára (færi). Að einhverju leyti kom þetta manni á óvart en í sjálfu sér ekkert þannig. Maður hefur sýnt það bara í öðrum flokknum að maður getur hent inn helling af mörkum," sagði Óðinn.
Óðinn var spurður út í tenginguna við Luka Kostic.
„Ég byrjaði að mæta til hans á svona einkaæfingar þar sem hann hjálpaði mér að bæta mig gríðarlega mikið. Svo var hann þjálfari ÍR í yngri flokkunum. Ég hafði samband við hann og spurði hvort hann gæti sest niður með mér og farið yfir leiki og aðeins skoðað þetta þannig að ég myndi fá betri leikskilning. Hann er búinn að reynast mér frábær og ef ég hef verið að pæla í einhverju þá hef ég hringt í hann og spurt hann um aðstoð. Ég er honum gríðarlega þakklátur fyrir alla þær framfarir sem ég hef tekið,"