Fotbolti.net
10.10.26 - 13:07
Brynjar Ingi Erluson

Portúgalska sambandið setur Ronaldo í bráðabirgða bann

Cristiano Ronaldo

Cristiano Ronaldo

Canon

Mynd: EPA

Portúgalska fótboltasambandið hefur sett Cristiano Ronaldo í bráðabirgðabann eftir að hafa höfðað agamál gegn honum. Sambandið greinir frá þessu í tilkynningu í dag.
Ronaldo sendi frá sér langa yfirlýsingu - Ætlar ekki að hætta
TENGT EFNI

Ronaldo sendi frá sér langa yfirlýsingu - Ætlar ekki að hætta

Ronaldo er 41 árs og kallaði sjálfur eftir því að verða settur í bann fyrir að yfirgefa landsliðið eftir leikinn gegn Noregi.

Hann sat allan leikinn á bekknum og fór í kjölfarið úr hópnum. Ronaldo taldi Jorge Jesus hafa svikið loforð við sig og sagðist því ekki hafa getað verið áfram.

„Á fundi aganefndar sem fer með mál utan atvinnumannakeppna þann 9. október var ákveðið að hefja agamál gegn Cristiano Ronaldo. Kannað verður hvort atvik sem tilkynnt voru 7. október varði við agareglur.“

„Leikmaðurinn hafði þegar sætt sjálfkrafa bráðabirgðabanni fram að stofnun málsins. Nú hefur verið ákveðið að úrskurða hann sérstaklega í áframhaldandi bráðabirgðabann,“
segir í tilkynningu sambandsins, en málið fær flýtimeðferð.

Ronaldo gæti því misst af landsleikjunum í nóvember. Hann hefur þó sagst tilbúinn að spila og ætla að svara kallinu verði hann valinn af Jesus.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.