Fotbolti.net
10.10.26 - 09:49
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham heldur til Marbella í æfingaferð

De Zerbi hefur ákveðið að fara með leikmannahópinn til Marbella

De Zerbi hefur ákveðið að fara með leikmannahópinn til Marbella

Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, ætlar með liðið í æfingaferð til Marbella á Spáni. Þetta kemur fram á BBC.
Tottenham hefur byrjað tímabilið illa og er enn án sigurs með aðeins tvö stig eftir fimm leiki. De Zerbi ætlar að reyna að snúa genginu við með æfingaferð til Marbella.

Liðið heldur til Spánar strax eftir leikinn gegn Manchester United í dag en fær síðan níu daga hlé áður en það mætir nýliðum Coventry City.

De Zerbi vonast til að þjappa hópnum saman og hjálpa nýju leikmönnunum að finna sig betur. Ferðin gefur leikmönnum líka færi á að skipta um umhverfi og hreinsa hugann eftir erfiða byrjun.

Það er óvenjulegt að fara í æfingaferð svo snemma á tímabilinu en hún gæti verið það sem Tottenham þarf til að komast af botninum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.