Fotbolti.net
10.10.26 - 10:13
Brynjar Ingi Erluson

Palmer gerir nýjan samning við Chelsea (Staðfest)

Palmer gerir nýjan samning við Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Cole Palmer hefur framlengt samning sinn við Chelsea um eitt ár en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Palmer er 24 ára og var samningsbundinn Chelsea til ársins 2033 en hefur nú framlengt um eitt ár.

Fram kemur að nýi samningurinn sé umbun fyrir frammistöðu hans og má því ætla að launin hækki talsvert. Chelsea hefur lagt áherslu á að semja við lykilmenn sína og hafa Joao Pedro, Moises Caicedo, Reece James og Pedro Neto einnig skrifað undir nýja samninga á árinu.

Palmer kom til Chelsea frá Manchester City árið 2023 og hefur skorað 58 mörk og lagt upp 34 í 138 leikjum fyrir félagið. Hann átti stóran þátt í því að liðið vann bæði Sambandsdeildina og HM félagsliða í fyrra.

Hann hefur byrjað þetta tímabil vel með fjórum mörkum og tveimur stoðsendingum í fyrstu sjö leikjum liðsins í öllum keppnum. Palmer var valinn í enska landsliðið fyrir síðasta verkefni en dró sig úr hópnum til að draga úr álaginu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.