10.10.26 - 10:11
Brynjar Ingi Erluson
Yfirlýsing eigendanna kom Moyes í opna skjöldu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
David Moyes, stjóri Everton, segir það hafa komið sér nokkuð á óvart að Friedkin-hópurinn hefði áhuga á því að selja félagið.
Moyes vissi ekkert af áformum eigenda Everton um mögulega sölu fyrr en sama dag og þau voru tilkynnt.
Friedkin-hópurinn eignaðist félagið fyrir um tveimur árum en skoðar nú hvort selja eigi það. Moyes segir samskiptin svo lítil að hann hafi verið með þeim síðustu til að frétta af áformunum og hafi aldrei hitt eigendurna.
Sumarið var erfitt á leikmannamarkaðnum og Moyes kvartaði yfir því að hafa ekki getað styrkt liðið meira. Hópurinn er enn þunnskipaður og nú ríkir óvissa um eignarhaldið.
„Ég hélt að við værum alveg á sömu blaðsíðu. Þegar ég sneri aftur ætlaði ég mér að koma Everton aftur þangað sem félagið var áður og berjast oftar um Evrópusæti.“
„Þetta var erfitt sumar hjá okkur og ég frétti ekki af þessu fyrr en um morguninn sem tilkynningin kom. Ég er kannski svolítið hissa en þetta ætti þó ekki að koma mér svo mikið á óvart,“ sagði Moyes.