Fotbolti.net
09.10.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Strákarnir á leið í umspilið - „Geggjað að sjá hvað það var góð og sterk liðsheild"

Auglýsing
Strákarnir á leið í umspilið - „Geggjað að sjá hvað það var góð og sterk liðsheild"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Íslenska U21 landsliðið mætir Grikklandi í umspili um sæti á EM 2027 en það var dregið í dag. Fótbolti.net ræddi við landsliðsmanninn Tómas Orra Róbertsson um dráttinn.
„Það leggst mjög vel í mig og strákana. Ég held að við eigum góðan séns í Grikkina. Þeir eru búnir að vera sterkir í sínum riðli og við erum náttúrulega búnir að vera góðir líka og sýndum þrjár góðar frammistöður núna. Ég held að það séu allir bara spenntir að spila við Grikkina," sagði Tómas.

Ísland lenti í 2. sæti í sínum riðli og tryggði sér þannig sæti í umspiliiinu. Liðið vann Sviss og Færeyjar og gerði jafntefli gegn ógnarsterku lðu Frakka í nýliðnum glugga.

„Það var bara sterkt stig á móti Frökkunum þarna í fyrsta leik og svo komu tvær mjög góðar frammistöður á móti Sviss og Færeyjum. Það voru allir að leggja inn vinnuna, hver sem spilaði var að sinna sínu og á endanum skilaði það okkur sjö stigum og komust áfram. Það var geggjað að sjá hvað það var góð og sterk liðsheild og allir tilbúnir að gera sitt og sinna sínu hlutverki vel," sagði Tómas.

Tómas var spurður að því hvernig tilfinningin var þegar sætið var í höfn.

„Það var náttúrulega geggjuð tilfinning. Menn fögnuðu út á velli og svo var ennþá meira fagnað í klefa. Það var geggjuð tilfinning en svo vorum við líka að fókusa á að klára okkar og það var helsta markmiðið. Svo kæmi hitt bara í ljós. Það var geggjað að heyra af hinum úrslitunum líka og vita að við erum komnir í umsplissæti," sagði Tómas.i

Þetta voru þrjár mjög góðar frammistöður, hver var lykillinn að þessu?

„Ég vil meina bara að við vorum allir í takti, bæði sóknarlega og varnarlega. Við spiluðum mjög góða varnarframmistöðu á móti Frökkunum og svo sóknarframmistöðu á móti Sviss þannig að það var á báða bóga sko. Ég vil meina það í rauninni hafi verið lykillinn," sagði Tómas.

Þú varst í byrjunarliði á móti Frakklandi, kom þér það á óvart og hvernig var að máta sig við svona góða leikmenn?

„Það er alltaf skemmtilegt að spila á móti svona stóru leikmönnunum og maður vill alltaf spila og það var bara gaman að fá sénsinn í þeim leik. En svo er gríðarleg samkeppni í þessu liði og allir sterkir menn í öllum stöðum þannig að það er bara barist um sætin í liðinu. Það er líka alltaf hollt fyrir hvern og einn. Gaman að spila og gaman að vera partur af þessu liði," sagði Tómas.

Mathys Tel, leikmaður Tottenham, spilaði með liði Frakka. Er ára yfir honum?

„Mér fannst það nú ekki í þessum leik þarna en jú, jú, auðvitað er hann góður leikmaður en við gerðum okkar og þarna planið gekk upp þannig að við fengum úrslit í þeim leik. Alveg eins og í hinum leikjunum, eru sterkir leikmenn í þessum liðum, ef menn eru tilbúnir að leggja inn vinnuna þá er engin spurning að við erum með gott lið og getum unnið hvaða þjóð sem er."

Fylgdistu með drættinum í morgun?

„Nei, ég var reyndar bara í vinnunni en ég sá það í hádeginu að það voru Grikkirnir þannig að það er bara spennandi."
Strákarnir á leið í umspilið - „Geggjað að sjá hvað það var góð og sterk liðsheild"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Strákarnir á leið í umspilið - „Geggjað að sjá hvað það var góð og sterk liðsheild"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.