Fotbolti.net
09.10.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Damir í stórt hlutverk hjá umboðsskrifstofu

Damir í stórt hlutverk hjá umboðsskrifstofu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í dag var tilkynnt að Damir Muminovic væri kominn í stórt hlutverk hjá umboðsskrifstofunni TWFM Group.

Damir er tvöfaldur Íslandsmeistari, mjög reynslumikill leikmaður sem spilar í dag með Grindavík.

Hann er kynntur sem yfirmaður hæfileikaleitar á Íslandi. Á ensku heitir það Talent Recruitment & Scouting Manager.
„Damir kemur inn með ríka reynslu úr fótboltanum og yfirgripsmikla þekkingu á íslenska markaðnum. Á leikmannaferli sínum lék hann með íslenska landsliðinu, varð Íslandsmeistari og tók þátt í Evrópukeppnum. Hjá TFWM Group mun Damir einbeita sér að því að finna og laða til sín næstu kynslóð hæfileikaríkra ungra leikmanna á Íslandi. Fyrir okkur er gríðarlega mikilvægt að hafa trausta, staðbundna fagaðila úr fótboltaheiminum á staðnum," segir m.a. í tilkynningu umboðsskrifstofunnar.

Pólverjarnir Robert Blakala og Hubert Kotus, sem leikið hafa á Íslandi um árabil, eru eigendur skrifstofunnar. Damir og Blakala voru liðsfélagar hjá Grindavík á liðnu tímabili.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.