Fotbolti.net
10.10.26 - 12:10
Brynjar Ingi Erluson

Forseti Barcelona lætur Madrídinga heyra það

Joan Laporta, forseti Barcelona, ásamt Florentino Perez, forseta Real Madrid

Joan Laporta, forseti Barcelona, ásamt Florentino Perez, forseta Real Madrid

Canon

Mynd: EPA

Joan Laporta, forseti Barcelona, fer hörðum orðum um Real Madrid og sakar félagið um að reyna að sverta orðspor Börsunga.
Real Madrid skilaði á dögunum 50 þúsund blaðsíðna skýrslu til UEFA vegna Negreira-málsins og vill að Barcelona verði svipt níu titlum.

Málið snýst um greiðslur Barcelona til Enrique Negreira, fyrrverandi varaformanns spænsku dómaranefndarinnar. Félagið er talið hafa greitt honum um 8,4 milljónir evra frá 2001 til 2018 og er sakað um að hafa með því reynt að hafa áhrif á dómgæsluna.

Real Madrid telur það hafa tekist en Laporta segir ekkert hæft í ásökununum. Hann er viss um að Barcelona verði hreinsað af þeim og segir Madrídinga þurfa að líta í eigin barm.

„Þegar þeir í Madríd vilja beina athyglinni frá sjálfum sér fara þeir að tala um aðra. Ég hef sagt það áður og segi það aftur að þeir hafa reynt að sakfella okkur áður en málið er dæmt. Það verður sífellt skýrara að það er enginn fótur fyrir þessum ásökunum. Barcelona verður hreinsað af þeim öllum.“

„Þeir sem hafa aftur og aftur reynt að skaða ímynd Barcelona munu þurfa að taka orð sín til baka. Þeir draga málið á langinn fyrir dómstólum til að halda því á lífi en það skilar þeim engu. Þeir vilja gera lítið úr Barca og ég trúi ekki að þetta sé gert í góðri trú.“

„Þetta segir sitt um félag sem nýtur sífellt minni virðingar og trausts, bæði á Spáni og erlendis. Það sjá allir. Þeir eru stoltir af sjálfum sér og koma fram af miklum hroka, eins og þeir viti allt best. Kannski ættu þeir að líta í eigin barm,“
sagði Laporta í Mundo Deportivo.
Forseti Barcelona lætur Madrídinga heyra það
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.