Fotbolti.net
10.10.26 - 14:07
Brynjar Ingi Erluson

Skoraði í fyrsta heimaleiknum - „Vil gefa stjóranum hausverk“

Bruno Guimaraes

Bruno Guimaraes

Canon

Mynd: EPA

Brasilíumaðurinn Bruno Guimaraes kom inn af bekknum og skoraði sigurmark Arsenal í 2-1 sigri á Leeds í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Meistararnir sýndu karakter gegn Leeds
TENGT EFNI

England: Meistararnir sýndu karakter gegn Leeds

Guimaraes kom til Arsenal frá Newcastle United í sumarglugganum og stimplaði sig inn með stæl í sínum fyrsta heimaleik fyrir félagið.

„Þetta er ótrúleg tilfinning. Við vorum ekki upp á okkar besta gegn Brighton en vorum staðráðnir í að svara fyrir það.“

„Þetta er fyrsti keppnisleikurinn minn hér á heimavelli og það er ótrúlegt að skora svona mikilvægt mark. Þrjú mikilvæg stig og geggjaður endir. Ég er í skýjunum,“
sagði Guimaraes.

Hann vill nú vinna sér fast sæti í liðinu og gera stjóranum erfitt fyrir að skilja sig eftir á bekknum.

„Þetta er geggjuð tilfinning. Ég vil leggja mig allan fram og gefa stjóranum hausverk. Ég er bara ánægður með að hafa skorað mitt fyrsta mark hér.“

„Ég hef sýnt hvað ég get í úrvalsdeildinni undanfarin fimm ár en þetta er auðvitað ný áskorun. Það skiptir mig máli að fá að spila.“

„Við vitum hversu erfið enska úrvalsdeildin er. Leeds er með frábært lið og þetta var erfiður leikur. Ég er ánægður með að við skyldum ná í þrjú stig. Þau eru alltaf vel þegin,“
sagði Guimaraes.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.