Endrick, Marcus Rashford, Kobbie Mainoo, Harvey Elliott og N'Golo Kante og fleiri koma fram í slúðurpakka dagsins.
   sun 10. nóvember 2019 21:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Sevilla upp fyrir Sociedad með sigri á Betis
Sevilla komst upp fyrir Real Sociedad í fjórða sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með sigri á Betis í lokaleik dagsins í La Liga.

Lucas Ocampos kom Sevilla yfir, en Betis jafnaði undir lok fyrri hálfleiks þegar Loren Moron skoraði. Hollendingurinn Luuk de Jong skoraði sigurmark Sevilla á 55. mínútu.

Sevilla er í fjórða sæti, en Betis er í miklum vandræðum. Betis, sem fékk Nabil Fekir til sín síðasta sumar, hefur ollið vonbrigðum til þessa og er í 17. sæti.

Getafe og Osasuna gerðu markalaust jafntefli fyrr í kvöld. Getafe er í sjöunda sæti og Osasuna í því tíunda.

Betis 1 - 2 Sevilla
0-1 Lucas Ocampos ('13 )
1-1 Loren Moron ('46 )
1-2 Luuk de Jong ('55 )

Getafe 0 - 0 Osasuna

Önnur úrslit:
Spánn: Morata skoraði og lagði upp í sigri Atlético
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 11 10 0 1 26 10 +16 30
2 Barcelona 11 8 1 2 28 13 +15 25
3 Villarreal 11 7 2 2 22 10 +12 23
4 Atletico Madrid 11 6 4 1 21 10 +11 22
5 Betis 11 5 4 2 18 12 +6 19
6 Espanyol 11 5 3 3 15 13 +2 18
7 Getafe 11 5 2 4 12 13 -1 17
8 Alaves 11 4 3 4 11 10 +1 15
9 Elche 11 3 5 3 12 13 -1 14
10 Vallecano 11 4 2 5 12 14 -2 14
11 Athletic 11 4 2 5 11 13 -2 14
12 Celta 11 2 7 2 13 14 -1 13
13 Sevilla 11 4 1 6 17 19 -2 13
14 Real Sociedad 11 3 3 5 13 16 -3 12
15 Osasuna 10 3 1 6 9 12 -3 10
16 Levante 11 2 3 6 15 20 -5 9
17 Mallorca 11 2 3 6 11 18 -7 9
18 Valencia 11 2 3 6 10 20 -10 9
19 Girona 11 1 4 6 10 24 -14 7
20 Oviedo 10 2 1 7 7 19 -12 7
Athugasemdir
banner
banner