Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 10. nóvember 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Sturlað sporðdrekamark hjá Lazaro
Valentino Lazaro skoraði ótrúlegt mark gegn Leverkusen
Valentino Lazaro skoraði ótrúlegt mark gegn Leverkusen
Mynd: Getty Images
Valentino Lazaro skoraði mark helgarinnar í þýsku deildinni er hann gerði þriðja mark Borussia Monchengladbach í 4-3 tapi gegn Bayer Leverkusen á sunnudag.

Lazaro er á láni hjá Gladbach frá Inter en þetta var fyrsta mark hans á tímabilinu.

Gladbach var 4-2 undir og var að reyna að koma til baka undir lok leiks en þá ákvað Lazaro að taka málin í sínar hendur.

Það kom fyrirgjöf inn í teig og bauð hann upp á svokallað sporðdrekamark en hægt er að sjá það hér fyrir neðan. Það er hægt að fullyrða það að þetta er eitt af mörkum ársins.

Sjáðu markið hér
Athugasemdir
banner
banner