Fotbolti.net
10.11.26 - 15:19
Kári Snorrason

Markús Árni í teymi Víkings (Staðfest)

Nýr aðstoðarþjálfari og yfirleikgreinandi Víkings.

Nýr aðstoðarþjálfari og yfirleikgreinandi Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markús Árni Vernharðsson hefur snúið aftur í Víkina og kemur hann inn í teymi Íslandsmeistarana sem aðstoðarþjálfari og yfirleikgreinandi.

Hann kemur í stað Arons Baldvins Þórðarsonar sem var í morgun tilkynntur sem nýr þjálfari Fylkis.
Aron Baldvin kynntur hjá Fylki (Staðfest)
TENGT EFNI

Aron Baldvin kynntur hjá Fylki (Staðfest)

Markús var leikgreinandi Víkings og var í leikgreinendateymi landsliðsins fyrir nokkrum árum áður en hann sneri sér að lögfræðistörfum.

Viktor Bjarki Arnarsson yfirgaf jafnframt teymi Víkings eftir tímabil og er hann tekinn við sem nýr yfirmaður fótboltamála hjá Stjörnunni í síðasta mánuði.

Matthías Vilhjálmsson var fenginn inn í hans stað og er hann sömuleiðis aðstoðarþjálfari liðsins.

Þekkir vel til í Víkinni.

Þekkir vel til í Víkinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.