10.11.26 - 10:27
Kári Snorrason
Freyr þjálfari mánaðarins - Sjáðu Alfreð færa honum fréttirnar

Rosenborg er í 3. sæti norsku deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Alexandersson var valinn þjálfari september- og októbermánaðar í norsku úrvalsdeildinni. Rosenborg vann sex af sjö deildarleikjum sínum á tímabilinu og fékk 19 stig af 21 mögulegu.
Verðlaunin eru veitt fyrir þessa tvo mánuði vegna þriggja vikna landsleikjahlésins sem byrjaði í september og lauk í byrjun október. Verðlaunin eru valin af dómnefnd TV2 og norsks toppfótbolta.
Þá var Amin Chiakha, framherji Rosenborg, valinn leikmaður mánaðanna tveggja en hann skoraði átta mörk í leikjunum sjö.
Alfreð Finnbogason, yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg, færði Frey fréttirnar í klefa Rosenborg eftir sigur liðsins gegn Start á laugardaginn.
Alfreð sagði þó að babb hefði komið í bátinn þar sem verðlaunin væru föst í póstinum en Freyr fagnaði engu að síður innilega.
Rosenborg er í 3. sæti deildarinnar og Evrópusætið innan seilingar. Freyr hefur náð að snúa afleitu gengi við en hann tók við liðinu í 15. sæti deildarinnar.
Hann var einnig valinn þjálfari júlímánaðar, Freyr hefur því verið þjálfari mánaðarins í þrjá mánuði af fjórum sem hann hefur verið við stjórnvölinn í Lerkendal.

Månedens trener i Eliteserien: Freyr Alexandersson ????
— Rosenborg Ballklub (@RBKfotball) November 10, 2026
Kåringen er gjort av en jury fra Norsk Toppfotball og TV2, er for månedene september/oktober og er presentert av Altibox. https://t.co/yBcqLv1RFp