Fotbolti.net
10.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Brad Friedel meðal nýrra eigenda Shrewsbury

Brad Friedel meðal nýrra eigenda Shrewsbury
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Fyrrum úrvalsdeildarmarkvörðurinn Brad Friedel fer fyrir fjárfestahópi sem var að ganga frá kaupum á enska D-deildarliðinu Shrewsbury Town.
Segir Mexíkó varla miðlungslið og England hafi ekkert að óttast
TENGT EFNI

Segir Mexíkó varla miðlungslið og England hafi ekkert að óttast

Friedel mun starfa sem yfirmaður fótboltamála hjá Shrewsbury, sem er í neðri hlutanum í League Two með 18 stig eftir 14 umferðir.

Fjárfestahópurinn kaupir 87,4% hlut í Shrewsbury og fær Roland Wycherley loksins að setjast í helgan stein eftir 30 ár sem forseti félagsins, en hann er 85 ára gamall. Wycherley hefur reynt að selja félagið síðastliðin fimm ár án árangurs. Hann er fæddur í Shrewsbury og var stuðningsmaður félagsins alla sína ævi, svo hann vildi alls ekki selja félagið til rangra eigenda.

Friedel er 55 ára Bandaríkjamaður sem lék fyrir Liverpool, Blackburn, Aston Villa og Tottenham á tæpum 20 ára ferli í ensku úrvalsdeildinni.
Brad Friedel meðal nýrra eigenda Shrewsbury
Canon

Mynd: EPA

England 2. deild - karlar

#LiðLmunStig
1Salford City14+1031
2Barnet13+1026
3Walsall13+922
4Crewe14022
5Cheltenham Town14-221
6Grimsby14+620
7York City14+320
8Gillingham14+120
9Accrington Stanley14+619
10Chesterfield14+319
11Tranmere Rovers14+219
12Exeter14+219
13Swindon Town14-219
14Newport14+318
15Shrewsbury14-518
16Fleetwood Town14017
17Bristol R.14-616
18Oldham Athletic14-415
19Port Vale12-415
20Rochdale14-915
21Northampton13-114
22Rotherham14-712
23Colchester13-712
24Crawley Town12-89
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.