Fotbolti.net
10.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Yamal ekki með gegn Tékklandi

Yamal ekki með gegn Tékklandi
Canon

Mynd: EPA

Lamine Yamal verður ekki með spænska landsliðinu sem heimsækir Tékkland á fimmtudaginn, en hann gæti verið í byrjunarliðinu í stórleiknum gegn Englandi á sunnudag.
Yamal ungi leikmaður ársins þriðja árið í röð
TENGT EFNI

Yamal ungi leikmaður ársins þriðja árið í röð

Yamal er að glíma við smávægileg meiðsli á hné en táningurinn hefur verið í miklu stuði á upphafi tímabils, þar sem hann er kominn með 17 mörk og 13 stoðsendingar í 20 leikjum með Barcelona og Spáni.

Leikurinn gegn Tékklandi verður sá fyrsti á leiktíðinni sem Yamal missir af.

Heims- og Evrópumeistararnir í spænska landsliðinu eru í mjög góðri stöðu í Þjóðadeildinni, með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Þeir gætu þó spilað úrslitaleik um toppsæti riðilsins þegar England kemur í heimsókn um helgina. Spánn vann fyrri leikinn á Englandi eftir að Harry Kane klúðraði vítaspyrnu.
Yamal ekki með gegn Tékklandi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.