Fotbolti.net
10.11.26 - 15:08
Kári Snorrason

Hill kallaður í enska hópinn í fyrsta sinn vegna meiðsla Konsa

Valinn í fyrsta sinn.

Valinn í fyrsta sinn.

Canon

Mynd: EPA

James Hill, varnarmaður Bournemouth, hefur verið kallaður í enska landsliðshópinn í fyrsta sinn. Ezri Konsa verður ekki leikfær þegar England mætir Króatíu í Þjóðadeildinni á fimmtudag.

Konsa fór meiddur af velli í leik Arsenal gegn Slavia Prag í Meistaradeildinni í síðustu viku. Hann meiddist á hné en lék engu að síður allan leikinn gegn Hull um helgina.
Burn inn í landsliðshópinn í staðinn fyrir meiddan Guehi
TENGT EFNI

Burn inn í landsliðshópinn í staðinn fyrir meiddan Guehi

Konsa á að byrja að æfa á ný seinna í vikunni og er búist við að hann verði klár í slaginn þegar England mætir Spáni í Madríd á sunnudag.

Hill hefur verið í lykilhlutverki hjá Bournemouth frá því á síðasta tímabili og hefur leikið hverja einustu mínútu í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Marc Guehi, varnarmaður Man City, neyddist á dögunum til að draga sig úr enska hópnum vegna meiðsla og var Dan Burn, varnarmaður Newcastle, kallaður inn í staðinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.