10.11.26 - 13:00
Kári Snorrason
Tímalína Mikaels smellpassaði

Byrjaði tvo leiki af fjórum í síðasta glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjaði tvo leiki af fjórum í síðasta glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mikael Neville Anderson hefur ekki spilað í tæpan mánuð með félagsliði sínu, AGF. Hann var engu að síður valinn í landsliðshópinn sem mætir Búlgaríu ytra og Lúxemborg á Laugardalsvelli í síðustu tveimur leikjum Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, segir í samtali við Fótbolta.net stöðuna á Mikael vera góða og að hann sé búinn að jafna sig á meiðslunum.
Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, segir í samtali við Fótbolta.net stöðuna á Mikael vera góða og að hann sé búinn að jafna sig á meiðslunum.

TENGT EFNI
Ekki spilað í mánuð en mætir til móts við landsliðið
„Staðan á honum er góð. Mikael er búinn að vera vinna sig upp úr meiðslunum. En tímalínan smellpassaði fyrir okkur að ef við værum ekki að fara í landsleikjaverkefni þá væri hann að fara að spila í næstu viku (með AGF). Þannig að hann er heill og standið eins gott og það getur verið miðað við aðstæður,“ sagði Davíð í samtali við Fótbolta.net í gær.
Mikael kom vel inn í liðið í síðasta landsliðsglugga og var hann í byrjunarliði Íslands í 3-0 sigri á Búlgörum og markalausu jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn.
Mikael kom vel inn í liðið í síðasta landsliðsglugga og var hann í byrjunarliði Íslands í 3-0 sigri á Búlgörum og markalausu jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn.
