10.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
David Silva skoraði í fyrsta leik í Hong Kong

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
40 ára gamall David Silva, sem lék áður með Valencia, Manchester City og Real Sociedad, hefur tekið takkaskóna af hillunni til þess að spila fyrir Sha Tin í efstu deild í Hong Kong.

TENGT EFNI
David Silva leggur skóna á hilluna
Hann lék sinn fyrsta leik fyrir nýtt félag um helgina og skoraði eina mark Sha Tin í jafntefli gegn Hong Kong Rangers.
Markið skoraði Silva af vítapunktinum á 56. mínútu og lék hann fyrstu 84 mínútur leiksins.
Silva átti mjög góðan leik og var valinn sem besti leikmaður vallarins. Sha Tin er í næstneðsta sæti deildarinnar með 5 stig eftir 7 umferðir en félagið vonast til að Silva hjálpi að snúa slæmu gengi til hins betra.