09.11.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lið ársins: Allar nema ein frá Englandi eða Spáni

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

FIFPRo, alþjóðleg samtök atvinnufólks í fótbolta, gefur út draumalið á hverju ári í báðum kynjum. Í dag voru draumalið síðustu leiktíðar kynnt og voru fimm enskar landsliðskonur í liði ársins ásamt fimm spænskum landsliðskonum. Til gamans má geta að allar spænsku landsliðskonurnar léku með Barcelona á síðustu leiktíð, en tvær þeirra voru fengnar yfir til London City Lionesses í sumar.
Allar atvinnukonur í fótbolta sem heyra undir FIFPRo fengu kosningarétt og er helst að frétta að hin 35 ára gamla Lucy Bronze var valin í lið ársins í níunda sinn, sem er met.
Bronze leikur með Chelsea og enska landsliðinu en hefur meðal annars komið við hjá Manchester City, Lyon og Barcelona á mögnuðum ferli.
Barbra Banda, ógnarsterkur framherji frá Sambíu, var valin í lið ársins í þriðja sinn og er eini leikmaðurinn í draumaliðinu sem er hvorki frá Englandi né Spáni.
Í ár voru 6511 atvinnukonur frá 64 mismunandi löndum sem greiddu atkvæði.
Markvörður:
Hannah Hampton (Chelsea, England)
Varnarmenn:
Lucy Bronze (Chelsea, England)
Alex Greenwood (Manchester City, England)
Mapi Leon (Barcelona, Spánn) - Leikur núna fyrir London City
Irene Paredes (Barcelona, Spánn)
Miðjumenn:
Aitana Bonmati (Barcelona, Spánn)
Alexia Putellas (Barcelona, Spánn) Leikur núna fyrir London City
Ella Toone (Man Utd, England)
Sóknarmenn:
Barbra Banda (Orlando Pride, Sambía)
Claudia Pina (Barcelona, Spánn)
Alessia Russo (Arsenal, England)