Fotbolti.net
10.11.26 - 17:06
Elvar Geir Magnússon

Veðbankar telja sigurlíkur Íslands gríðarlegar

Búlgaría - Ísland verður 19:45 að íslenskum tíma á föstudag.

Búlgaría - Ísland verður 19:45 að íslenskum tíma á föstudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland leikur gegn Búlgaríu ytra á föstudagskvöld og loka svo riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar með heimaleik við Lúxemborg á Laugardalsvelli næsta mánudag.

Íslenska liðið er í bílstjórasætinu í riðlinum þrátt fyrir að hafa ekki náð að vinna Eistland í síðasta glugga en báðir leikirnir gegn Eistum enduðu með jafntefli.
Hvernig verður byrjunarliðið í Búlgaríu?
TENGT EFNI

Hvernig verður byrjunarliðið í Búlgaríu?

Búlgarar voru arfadaprir á Laugardalsvelli í síðasta glugga, þar sem Ísland vann 3-0. Veðbankar búast við sannfærandi íslenskum sigri í Plodiv í Búlgaríu á föstudaginn.

Epicbet er með stuðulinn 4,49 á sigur Búlgaríu en aðeins 1,81 á sigur Íslands á útivelli. jafntefli er með stuðulinn 3,50.

Í skoðanakönnun á forsíðu Fótbolta.net spá 69% því að Ísland vinni, 17% spá jafntefli en 14% sigri Búlgaríu.
Veðbankar telja sigurlíkur Íslands gríðarlegar
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.