Fotbolti.net
10.11.26 - 15:46
Elvar Geir Magnússon
- Skrifar frá La Finca

Arnar og Daníel mættir í sólina á Fincunni

Íslenska landsliðið á æfingu á La Finca.

Íslenska landsliðið á æfingu á La Finca.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Eimskip
Íslenska landsliðið æfir í þessum skrifuðu orðum á La Finca æfingasvæðinu á Spáni og eru allir 23 leikmenn hópsins samankomnir og taka þátt í æfingunni sem fram fer í sól og blíðu, 24 gráðu hita.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari stýrði æfingunni. Hann mætti á æfingasvæðið í dag en komu hans var seinkað af persónulegum ástæðum.
Tímalína Mikaels smellpassaði
TENGT EFNI

Tímalína Mikaels smellpassaði

Varnarmaðurinn Daníel Leó Grétarsson er einnig mættur en hann hefur verið í leyfi frá félagsliði sínu, AGF, að undanförnu vegna fjölskylduástæðna. Óvissa ríkti um þátttöku hans í komandi leikjum og gleðitíðindi að hann verði með.

Þá er Mikael Anderson einnig með en hann hefur ekki spilað með AGF í um fjórar vikur vegna meiðsla. Hann er búinn að jafna sig í tæka tíð og var allavega með þær fimmtán mínútur sem fjölmiðlar máttu fylgjast með æfingunni í dag.

Það virðist því allt í mjög góðum gír fyrir leikinn gegn Búlgaríu í Plovdiv sem verður á föstudagskvöldið. Eins og fjallað hefur verið um eru margir leikmenn i hópnum að koma funheitir inn í verkefnið.

Ísland þekkir La Finca eins og lófann á sér en þetta er í þriðja sinn á síðustu árum sem liðið tekur undirbúning hér. Menn eru því farnir að þekkja starfsliðið vel, æfingavellirnir eru góðir, allur aðbúnaður til fyrirmyndar og greinilegt er að leikmönnum líður eins og heima hjá sér.

Á morgun verður flogið til Plovdiv og leikurinn á föstudag eins og áður sagði. Riðlinum lýkur síðan með leik gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli næsta mánudag.

Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum á föstudaginn en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Efsta lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.

Hópurinn
Markverðir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 26 leikir
Rúnar Alex Rúnarsson - FC Köbenhavn - 11 leikir
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir

Útileikmenn
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 34 leikir, 3 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 20 leikir, 1 mark
Hörður Björgvin Magnússon - Atromitos FC - 57 leikir, 2 mörk
Daníel Leó Grétarsson - AGF - 35 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Qatar SC - 111 leikir, 5 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 40 leikir, 1 mark
Mikael Neville Anderson - AGF - 42 leikir, 2 mörk
Guðlaugur Victor Pálsson - AC Horsens - 62 leikir, 6 mörk
Gylfi Sigurðsson - Víkingur R. - 90 leikir, 28 mörk
Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 48 leikir, 6 mörk
Þórir Jóhann Helgason - Venezia FC - 20 leikir, 2 mörk
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 35 leikir, 3 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 13 leikir, 2 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha BSC - 57 leikir, 6 mörk
Kristall Máni Ingason - SK Brann - 10 leikir
Arnór Sigurðsson - Kalamata F.C. - 39 leikir, 2 mörk
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 22 leikir, 12 mörk
Ísak Snær Þorvaldsson - Lyngby BK - 9 leikir, 1 mark
Andri Lucas Guðjohnsen - Blackburn Rovers F.C. - 43 leikir, 12 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 12 leikir, 1 mark
Daníel Leó er lykilmaður í vörn Íslands.

Daníel Leó er lykilmaður í vörn Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael Anderson.

Mikael Anderson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar og Daníel mættir í sólina á Fincunni
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.