Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   sun 10. desember 2023 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikur: Rikki G skoraði tvö með Álafossi
Mynd: Fótbolti.net
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Álafoss 12 - 1 KM
1-0 Alexander Aron Davorsson
1-1 Elías Kári Huldarsson
2-1 Hildimar Daði Halldórsson
3-1 Ríkharð Óskar Guðnason
4-1 Hildimar Daði Halldórsson
5-1 Ríkharð Óskar Guðnason
6-1 Daníel Ingi Jónsson
7-1 Kári Jökull Ingvarsson
8-1 Kári Jökull Ingvarsson
9-1 Brynjar Þór Arnarsson
10-1 Kári Jökull Ingvarsson
11-1 Daníel Ingi Jónsson
12-1 Daníel Ingi Jónsson

Álafoss og KM, sem bæði leika í neðstu deild íslenska boltans, mættust í æfingaleik í dag sem lauk með stórsigri Mosfellinga.

Alexander Aron Davorsson, fyrrum leikmaður Aftureldingar og þjálfari kvennaliðsins, skoraði fyrsta mark leiksins og voru Daníel Ingi Jónsson og Kári Jökull Ingvarsson atkvæðamestir með þrennu hvor í 12-1 sigri.

Það sem vekur meiri athygli er að Ríkharð Óskar Guðnason, útvarps- og sjónvarpsmaður með meiru, var í liði Álafoss og skoraði tvennu í sigrinum.

Ríkharð, betur þekktur sem Rikki G, er þekktur flestum landsmönnum eftir langan feril í útvarpi og sjónvarpi og stýrir hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner