11.01.04 - 00:00
Edgar Davids til Barcelona (Staðfest)

Núna seint í kvöld samþykkti hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids að ganga til liðs við Barcelona. Eins og við greindum frá hérna og hérna þá hefur Davids verið í viðræðum við Barcelona en nú er loks búið að ganga frá samningnum. Hann fer á lánssamningi út tímabilið og svo hafa Katalónarnir forkaupsrétt á kappanum.
Txiki Begiristain yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona sagði að Davids myndi jafnvel spila sinn fyrsta leik gegnt Levante í vikunni. "Það fer allt eftir því hvenær félagaskiptin eru staðfest en hann gæti spilað í vikunni" sagði Begiristain. Við erum himinlifandi yfir þessu, Davids getur hjálpað okkur á margvíslegan hátt"
Það eru margir hollendingar fyrir á Nou Camp, leikmennirnir Philip Cocu, Michael Reiziger, Patrick Kluivert, Marc Overmars og Giovanni van Bronckhorst ásamt þjálfaranum Frank Rijkaard og aðstoðarmanni hans Henk ten Cate.
Það var forseti félagsins, hinn umdeildi Joan Laporta sem fór til Torino á föstudaginn eins og við greindum frá og fékk grænt ljós til að hefða jsamningaviðræður. Þessi fyrrum leikmaður Ajax og AC Milan verður samningslaus í sumar og getur því farið frítt til Barcelona, ef þeir kjósa að fá hann til sín en það fer eftir frammistöðu hans á þessum lánssamningi.
Davids var talinn einn af bestu miðjumönnum heims þegar hann spilaði með Rijkaard í Ajax og vann Meistaradeildina 1995. Árið 2001 fannst svo nandrolone í lyfjaprófi leikmannsins eftir leik gegn Udinese en hann hélt ávallt frammi sakleysi sínu. Hann kom svo tvíefldur til baka en hann fékk 4 mánaða bann fyrir brotið.
Barcelona unnu Real Zaragoza, 3-0 í dag og eftir það fóru forráðamenn liðsins upp á hótelherbergi til að ákveða samninginn með Davids. Liðið er þó 16 stigum á eftir Valencia sem er í toppsætinu og á gott sem enga möguleika á titlinum úr þessu en vonast eftir því að komast í Meistaradeildina.
Forráðamennirnir, þar á meðal Laporta og Begiristainkomu svo af hótelinu og tilkynntu þetta á miðnætti í kvöld.