Fotbolti.net
11.01.05 - 09:52

Kevin Campbell til WBA (Staðfest)

Kevin Campbell til WBA (Staðfest)
Canon
Hinn 34 ára gamli framherji Kevin Campbell hefur gengið til liðs við WBA. Hann hefur verið hjá Everton í sex ár áður en hann fór frá liðinu án greiðslu og ákvað að finna sér nýtt lið. Hann fann það í WBA og skrifaði undir 18 mánaða samning.
Bryan Robson var ánægður með að klófesta þennan reynda markaskorara: "Ég er hæstánægður með að fá hann. Hann er mjög reyndur og þekkir Úrvalsdeildina út og inn. Ég held að hann muni ná árangri hér. Verkefni hans er að hjálpa okkur að halda liðinu í deildinni og ef við förum niður ætlar hann samt að vera áfram og hjálpa okkur að komast aftur upp."

Campbell átti hálft ár eftir af samningi sínum við Everton en hann var einn af hæstlaunuðustu leikmönnum liðsins, með 35.000 pund á viku. En eftir að James Beattie var keyptur á Goodison Park og Nick Chadwick hefur verið í góðu formi þá átti Campbell ekki mikla möguleika á að spila mikið.

Campbell hóf feril sinn hjá Arsenal en hann vann titilinn með liðinu fyrir 13 árum síðan áður en hann gekk til liðs við Nottingham Forest árið 1997. Hann fór til Everton árið 1999 eftir stutta dvöl hjá Tyrkneska liðinu Trabzonspor.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.