Fotbolti.net
11.04.26 - 17:43
Brynjar Ingi Erluson

Oliver á leið í KA

Oliver Heiðarsson

Oliver Heiðarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Oliver Heiðarsson er á leið til KA frá króatíska úrvalsdeildarfélaginu Lokomotiva Zagreb en þetta herma heimildir Fótbolta.net.
Fleiri félög að berjast um Oliver
TENGT EFNI

Fleiri félög að berjast um Oliver

Oliver er 25 ára gamall leikmaður og hefur spilað með Þrótti, FH og ÍBV hér á landi. Hann á að baki 124 meistaraflokksleiki á Íslandi og hefur skorað í þeim 29 mörk.

Í byrjun ársins gekk hann í raðir Lokomotiva frá ÍBV en fengið fá tækifæri til að sýna sig og ekki verið í hópnum í síðustu sex leikjum.

Fótbolti.net sagði frá því í gær að tilboði Keflavíkur í Oliver hafi verið samþykkt og í dag var greint frá því að félagið þyrfti ekki greiða fyrir hann en að Lokamotiva fengi 20 prósent af næstu sölu.

Keflavík var þó ekki eina liðið sem var í baráttu um Oliver en KA, Breiðablik og Valur sýndu mestan áhuga. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net bauð KA framherjanum mjög góðan samning og er hann nú á leið þangað.

Oliver er sonur fyrrum landsliðsmannsins Heiðars Helgusonar, sem lék lengst af á Englandi, meðal annars með Fulham, Watford og QPR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.