Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 11. maí 2022 18:20
Sverrir Örn Einarsson
Byrjunarlið Vals og ÍA: Arnór Smára byrjar
Sigurður Egill mættur á bekkinn
Arnór Smárason.
Arnór Smárason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fimmta umferð Bestu deildar karla rúllar af stað í kvöld en alls eru fjórir leikir á dagskrá í deildinni þetta kvöldið. Á Origo vellinum taka Valsmenn á móti liði ÍA en flautað verður til leiks klukkan 19:15

Beinar textalýsingar:
18:00 ÍBV - KR
19:15 Breiðablik - Stjarnan
19:15 KA - FH
19:15 Valur - ÍA

Valsmenn gera eina breytingu á liði sínu frá jafnteflinu gegn FH á dögunum. Aron Jóhannsson er ekki í hóp hjá Val í kvöld en í hans stað kemur Arnór Smárason inn í liðið. Þá vekur athygli að Sigurður Egill Lárusson er á bekknum hjá Val í annað sinn í sumar, hann var líka í hóp gegn ÍBV í fyrstu umferð.

Hjá ÍA kemur Alex Davey aftur inn í byrjunarlið ÍA en hann meiddist í 1. umferð gegn Stjörnunni. Alex kemur inn fyrir Hlyn Sævar Jónsson sem tekur sér sæti á bekknum.

Byrjunarlið Vals
1. Guy Smit (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Jesper Juelsgård
5. Birkir Heimisson
6. Sebastian Hedlund
8. Arnór Smárason
9. Patrick Pedersen
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
14. Guðmundur Andri Tryggvason
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson

Byrjunarlið ÍA
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Johannes Björn Vall
4. Oliver Stefánsson
6. Jón Gísli Eyland Gíslason
7. Christian Thobo Köhler
10. Steinar Þorsteinsson
11. Kaj Leo Í Bartalstovu
17. Gísli Laxdal Unnarsson
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Eyþór Aron Wöhler
44. Alex Davey
Athugasemdir
banner