Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 16:00
Elvar Geir Magnússon
Chelsea setur sig í samband við stjóra
Filipe Luis er einn af þeim sem eru orðaðir við Chelsea.
Filipe Luis er einn af þeim sem eru orðaðir við Chelsea.
Mynd: EPA
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að Chelsea sé búið að setja sig í samband við nokkra stjóra sem koma til greina í stjórastarf félagsins.

Andoni Iraola, Xabi Alonso og Marco Silva eru meðal nafna á blaði til að koma í stað Liam Rosenior sem var rekinn í síðasta mánuði. Oliver Glasner stjóri Palace kemur einnig til greina.

Filipe Luis stjóri Flamengo og Cesc Fabregas stjóri Como, sem báðir eru fyrrum leikmenn Chelsea, eru einnig sagðir eiga aðdáendur innan félagsins.

Vonast er til þess að nýr stjóri verðir ráðinn vel áður en æfingar á undirbúningstímabilinu fara af stað snemma í júlí.

Iraola, Alonso, Silva og Glasner eru allir án starfs eða láta af störfum í sumar. Glasner kveður Palace þegar samningur hans rennur út í sumar og er opinn fyrir því að vera áfram í enska boltanum. Iraola hefur staðfest að hann hætti hjá Bournemouth í lok tímabilsins.

Iraola er efstur á blaði Palace og félagið hefur þegar sett sig í samband við hann. Hann vill þó skoða hvaða kosti hann hefur

Samningur Silva við Fulham rennur út í sumar og félög í Sádi-Arabíu hafa horft til hans. Silva er með nýjan þriggja ára samning við Fulham á borðinu.
Slapp
banner
banner