Fotbolti.net
24.06.26 - 13:50
Kári Snorrason

ÍR-ingar að endurheimta lykilmann

ÍR-ingar að endurheimta lykilmann
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Arnór Sölvi Harðarson er farinn að æfa á ný með ÍR eftir að hafa verið frá keppni það sem af er tímabili vegna meiðsla.

Arnór gekkst fyrr á árinu undir skurðaðgerð á kálfum og hefur verið í endurhæfingu frá byrjun sumars. Batinn hefur gengið vel að undanförnu og hefur hann æft með ÍR síðustu tvær vikur.
Tímabilið í hættu hjá lykilmanni ÍR
TENGT EFNI

Tímabilið í hættu hjá lykilmanni ÍR

Arnór var í stóru hlutverki á síðasta tímabili en liðið var á toppi deildarinnar þegar hann hélt til Bandaríkjanna í nám um mitt sumar.

ÍR er nú í 9. sæti deildarinnar með ellefu stig. Búist er við að Arnór snúi til baka áður en langt um líður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.