Fotbolti.net
24.06.26 - 00:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dressmann

Olla Sigga spáir í leiki dagsins á HM

Fagnar marki í sumar.

Fagnar marki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrstu riðlarnir á HM klárast á næsta sólarhringnum og verður mjög áhugavert að sjá hvernig það fer.

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, sóknarmaður Breiðabliks, spáir í leikina sem eru framundan.
Besta deild kvenna: Olla Sigga með tvennu í sigri Blika - Fyrsti sigur Þórs/KA
TENGT EFNI

Besta deild kvenna: Olla Sigga með tvennu í sigri Blika - Fyrsti sigur Þórs/KA

Kólumbía 3 - 1 Kongó (02:00)
Mörk: Luis Díaz (2), Jhon Durán – Wissa.
DR Kongó heldur sér inni í leiknum í smá stund en svo fara Kólumbíumenn að njóta sín og gera endanlega út um leikinn.

Bosnía og Hersegóvína 2 - 0 Katar (19:00)
Mörk: Dzeko og Demirovic.
Katar reynir sitt besta en Bosníumenn eru í bullandi séns á að komast upp úr riðlinum og rífa sig almennilega í gang.

Sviss 2 - 2 Kanada (19:00)
Mörk: Embolo, Amdouni - David, Buchanan.
Spennandi leikur þar sem liðin skiptast á að sækja. Kanadamenn eru svo kurteisir að þeir ákveða að sætta sig við jafntefli svo bæði lið komist áfram.

Marokkó 2 - 0 Haítí (22:00)
Mörk: Hakimi, En-Nesyri.
Marokkó stjórnar leiknum frá upphafi til enda og Haítí á einfaldlega ekki svar við gæðunum.

Skotland 1 - 4 Brasilía (22:00)
Mörk: McTominay - Vinícius Jr. (2), Rodrygo, Raphinha.
Skotar byrja á því að láta eins og þeir ætli að valda stærsta sjokki mótsins og klára allan bjórinn á vellinum. Síðan muna Brasilíumenn hverjir þeir eru og vinna sannfærandi sigur.
Luis Diaz.

Luis Diaz.

Canon

Mynd: EPA

Brasilía mætir Skotlandi.

Brasilía mætir Skotlandi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.